Menningarráð vinnuhópur - 6. feb. 2007
Fjórði fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 6. febrúar 2007 kl. 14.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
Mættir voru: Dagný Sveinbjörnsdóttir (Atvest), Ingi Þór Ágústsson (Ísafjarðarbær), Ólína Þorvarðardóttur (Ísafjarðarbær), Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð), Sveinn Valgeirsson (Tálknafjörður) Dagbjört Hjaltadóttir (Súðavík), Gunnar Hallsson (Bolungarvík), Arnar S. Jónsson (Strandabyggð) var í síma og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (starfsmaður).
1. Upplýsingar frá Vesturlandi
Albertína greindi frá samtali sínu við Helgu Halldórsdóttur formann Menningarráðs Vesturlands. Gunnar greindi frá samtali sínu við Jón Pálma fulltrúa í Menningarráði Vesturlands. Umræður um þær upplýsingar sem fengust á Vesturlandi. Mikilvægt að staðið verði fast á því í viðræðum við ráðuneytin að farið verði eftir fordæmi Vesturlands við túlkun menningarsamningsins.
2. Fulltrúafjöldi/svæðaskipting í Menningarráði
Rætt um hver fulltrúafjöldi og þá svæðaskipting ætti að vera í Menningarráði. Lagðar fram tölur og tillögur að skiptingu miðað við annars vegar 7 fulltrúa og 5 fulltrúa. Einnig rætt hvort e.t.v. ætti einfaldlega að halda sig við 9 fulltrúa. Skiptar skoðanir komu fram um hver fjöldi fulltrúa í Menningarráðinu ættu að vera. Samþykkt samhljóða að lagt verði til við sveitarstjórnir að fulltrúar í Menningarráði verði áfram níu. Rökin fyrir 9 - m.a. eins og núverandi landfræðilegum staðháttum háttar þá er æskilegast að áfram verði 9 fulltrúar.
3. Drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna
- 4. grein samningsins lagfærð, athugasemdir varðandi hvers vegna ekki er talað um aðrar menningarstofnanir á fjárlögum, bætt við "auk menningarstofnanna á föstum fjárlögum".
Rætt um hvort ástæða sé til að setja inn % tölur úr ríkissamningnum í samstarfssamning sveitarfélaganna.
2. grein samningsins lagfærð: Sett inn: ,,Menningarráð skal skipað 9 mönnum á grundvelli þriggja svæða (sbr. 3. grein). Skipað verði í ráðið á aðalfundi Menningarráðs Vestfjarða til tveggja ára í senn. Fulltrúar skiptast þannig: Einn fulltrúi frá Strandasýslu, einn fulltrúi frá Austur-Barðastrandasýslu, tveir fulltrúar frá Vestur-Barðastrandasýslu, tveir fulltrúar frá Ísafjarðarbæ, einn fulltrúi frá Bolungarvík og einn fulltrúi frá Súðavík. Auk þess tilnefni Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða einn fulltrúa."
4. Breytingar á stefnumótun
Nokkrir punktar lagfærðir og öðrum hent út. Sjá skjal.
Samþykkt að Albertína sendi lokadrög af samning og stefnumótun til samþykktar í tölvupósti.
Fundi slitið kl. 15.55.