Styrkveitingar Menningarráðs til menningarverkefna
Menningarráð Vestfjarða veitir verkefnastyrki til menningarstarfs á Vestfjarðakjálkanum. Úthlutunarreglur hverju sinni eru aðgengilegar undir tenglinum Styrkir hér til hægri, eins og rafræna eyðublaðið sjálft og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hér má einnig nálgast umsóknareyðublað á Word-formi, sem hægt er að vista á eigin tölvu til að hægt sé að vinna í umsókn á lengri tíma og það má síðan senda sem viðhengi með tölvupósti á menning@vestfirdir.is. Nú er sú nýbreytni tekin upp að fylgiskjöl með umsóknum eru afþökkuð, í umsóknunum sjálfum á allt að koma fram sem máli skiptir.
Heimilisfang Menningarráðsins er:
Menningarráð Vestfjarða, Höfðagata 3, 510 Hólmavík.
Rafræn umsókn á vefnum
Umsóknareyðublað á Word-formi
Sýnishorn af samningseyðublaði milli styrkþega og Menningarráðs
Áfanga- eða lokaskýrsla til Menningarráðsins vegna verkefnastyrkja
Vel gerð og ítarleg umsókn eykur möguleikana á styrk. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að vinna að umsókn og gera hana sem best úr garði, þannig að árangur náist. Nauðsynlegt er að kynna sér úthlutunarreglur vandlega. Heppilegt getur verið að vinna umsóknir í ritvinnsluskjali og færa síðan inn í formið á vefnum þegar umsókn er send. Umsækjendum er bent á að eiga afrit af umsóknargögnum.
Styrkjum var fyrst úthlutað árið 2007 og árin 2008, 2009 og 2010 var styrkjum úthlutað tvisvar sinnum. Fyrsta styrkúthlutun fór fram í desember 2007 í Náttúrugripasafninu í Bolungarvík og önnur úthlutun í apríl 2008 á Hólmavík í tengslum við vígslu Þróunarseturs þar. Þriðja úthlutun fór fram í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði í nóvember 2008 og sú fjórða á Edinborgarhúsinu á Ísafirði í apríl 2009. Þá var úthlutað styrkjum í desember 2009 á Hlunnindasafninu á Reykhólum og vorið 2010 var athöfnin á Skrímslasetrinu í Bíldudal. Haustið 2010 var úthlutað í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Hægt er að nálgast lista yfir styrkþega hverju sinni undir tenglinum Styrkir hér til hægri.