Úthlutunarreglur: Verkefnastyrkir haust 2011

1. Tilgangur styrkjanna er, samkvæmt samningi sveitarfélaga á Vestfjörðum, menntamálaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytis, að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

2. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og menningarverkefni á Vestfjörðum.
 
3. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við síðari úthlutun ársins 2011 verði litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur: 
# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.

# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.

# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.

# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.

# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í listsköpun og menningarstarfi.


4. Menningarráðið veitir styrki til afmarkaðra menningarverkefna.
> Ráðið veitir ekki styrki til reksturs menningarstofnana eða félaga.
> Ráðið veitir ekki styrki vegna stofnkostnaðar (svo sem tækjakaupa).
> Ráðið veitir ekki styrki vegna endurbóta eða kaupa á húsnæði.
> Ráðið veitir ekki styrki vegna skráningar á menningarminjum
> Ráðið veitir ekki styrki vegna forvörslu safngripa
> Ráðið veitir ekki styrki vegna hefðbundinna bæjarhátíða
> Ráðið veitir ekki styrki vegna almennra samkoma eða viðburða án sýnilegrar sérstöðu
> Ráðið veitir ekki styrki vegna hefðbundinnar starfsemi íþróttafélaga
> Ráðið veitir ekki styrki vegna hefðbundins menningarstarfs safnaða
> Ráðið veitir ekki styrki vegna hefðbundins menningarstarfs innan skóla

5. Styrkir Menningarráðsins geta aldrei verið hærri fjárhæð en sem nemur helmingi alls kostnaðar við verkefni.

6. Í umsókninni verður að vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ásamt ítarlegri fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun). Einnig þarf greinargóðar upplýsingar um aðstandendur og samstarfsaðila, ef þeir eru til staðar, og hlutverk þeirra í verkefninu. Fylgiskjöl með umsóknum eru afþökkuð, í umsóknunum sjálfum á að allt að koma fram sem máli skiptir.
 
7. Umsækjandi ábyrgist að fullnægjandi leyfi séu fyrir framkvæmd verkefnis og notkun heimilda ef þarf, sem og öðrum þáttum verkefnisins.

8. Menningarráð Vestfjarða og styrkþegi gera með sér sérstakan samning sem m.a. kveður á um fyrirkomulag greiðslu og eftirfylgni. Styrkþegi skal skila lokaskýrslu sem felur í sér lýsingu á framkvæmd og árangri verkefnisins, yfirlit um kostnað, auk umsagnar um verkefnið til birtingar á vefsíðu ráðsins. Eins ber styrkþega að veita Menningarráði Vestfjarða upplýsingar um framkvæmd verkefnisins og skila áfangaskýrslu ef eftir því er leitað. Útborgun styrkja er háð skilum lokaskýrslu og ef ekkert verður af verkefni eða verulegar breytingar verða á því eru styrkir afturkræfir. Miðað er við að styrkir séu greiddir út innan árs frá úthlutunardegi. Að öðrum kosti mega styrkþegar gera ráð fyrir að styrkir falli niður, nema um annað hafi verið samið.

9. Menningarráð Vestfjarða heitir fyllsta trúnaði gagnvart umsækjendum varðandi umsóknir þeirra.

10. Umsóknir skulu vera á eyðublöðum frá Menningarráðinu og er mælst til þess að þær séu sendar inn rafrænt í gegnum vefsíðu Menningarráðsins eða í tölvupósti. Umsóknir sem sendar eru í pósti þurfa að vera póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.

Samþykkt á stjórnarfundi Menningarráðs Vestfjarða 2. september 2011.
 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón