Ýmsir styrkmöguleikar

Sjálfstæðir sjóðir
  • Listasjóður Dungal
    Styrkir unga og efnilega myndlistarmenn. Umsóknarfrestur rennur út seint á árinu og úthlutanir kynntar í janúar ár hvert. Frestur til 10. desember 2010.
  • Menningarsjóður Landsbankans
    Úthlutanir úr nýjum sjóði verða auglýstar í byrjun árs 2011.
  • Menningarsjóður Visa
    Hlutverk sjóðsins er að styðja margvísleg menningar-, líknar-, og velferðarmál. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar ár hvert.
  • Nýsköpunarsjóður námsmanna
    Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni.
  • Pokasjóður
    Pokasjóður styrkir m.a. menningarverkefni.
  • Sjóvá - styrktarsjóður
    Sjóvá veitir árlega styrki til aðila sem vinna að ýmsum góðum málefnum í þágu samfélagsins., m.a. til menningarmála.
  • Styrktarsjóður Pennans
    Styrkir m.a. til lista og menningar.
Sjóðir hjá ríkisvaldinu
  • Átak til atvinnusköpunar
    Styrkir á vegum Iðnaðarráðuneytis.
  • Barnamenningarsjóður
    Sjóður sem styður við margvísleg verkefni sem snúast um eflingu barnamenningu.
  • Bókmenntasjóður
    Bókmenntasjóður tók til starfa á miðju ári 2007 og hefur með höndum hlutverk Bókmenntakynningarsjóðs, Menningarsjóðs og Þýðingarsjóðs sem hafa verið lagðir niður.
  • Fornleifasjóður
    Verkefni Fornleifasjóðs er að stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornleifum og forngripum.
  • Frumkvöðlastuðningur
    Styrkir til nýsköpunar í atvinnulífi á landsbyggðinni á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands - Impru.
  • Húsafriðunarsjóður
    Styrkir til endurbóta gamalla húsa, húsakönnunar o.fl.
  • Kvikmyndasjóður
    Sjóður sem styrkir kvikmynda- og heimildamyndargerð.
  • Listamannalaun
  • Listir og önnur menningarmál
    Styrkir til ýmissa verkefna á sviði menningarmála, þ.m.t. íþrótta- og æskulýðsmál
  • Listskreytingasjóður ríksins
    Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til listskreytinga opinberra bygginga sem fullbyggðar voru við gildistöku laganna (1. janúar 1999), umhverfis þeirra og annarra útisvæða á forræði ríkisins og sveitarfélaga.
  • Menningarsjóður Finnlands og Íslands
  • Safnasjóður
    Veitir bæði rekstrarstyrki til viðurkenndra safna og verkefnastyrki. Umsóknarfrestur rennur út að hausti ár hvert.
  • Skrefi framar
    Ráðgjafaverkefni fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni þar sem Impra nýsköpunarmiðstöð greiðir niður ráðgjafakostnað í verkefninu um allt að 600 þús. kr
  • Styrkir til atvinnuleikhúsa
    Leiklistarráð gerir tillögu til menntamálaráðuneytisins um úthlutun fjár sem veitt er í fjárlögum til stuðnings atvinnuleikhópum. Ráðuneytið veitir styrki til einstakra verkefna eða samfellds starfs til lengri tíma. Úthlutað er einu sinni á ári og rennur umsóknarfrestur út í október ár hvert.
  • Styrkir til starfsemi áhugaleikfélaga
    Styrkir til leiksýninga á íslenskum eða erlendum verkum, skemmtidagskrám eða söngleikjum og einnig til vandaðra bókmenntakynninga og námskeiðahalds. Umsóknarfrestur til 10. júní ár hvert.
  • Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
    Til samstarfs á breiðum grundvelli; til vísinda, félagsstarfs, kennslumála og fleira, en þó einkum til menningarmála. Verkefnastyrkir og ferðastyrkir.
  • Tónlistarsjóður
    Sjóður sem einbeitir sér að því að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.
  • Æskulýðssjóður
    Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón